Nýjast á Local Suðurnes

Tekinn á 64 km. hraða – Sviptur í þrjá mánuði

Ökumaður mældist á 64 km. hraða í gær,  í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum, þar sem hámarkshraði er 30 km. á klukkustund. Hann var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða í þrjá mánuði, auk þess að fá sekt upp á 45.000 krónur og þrjá refsipunkta í ökuferilsskrá.

Auk hans hafa sex ökumenn verið kærðir fyrir of hraðan akstur á undanförnum dögum.