Nýjast á Local Suðurnes

Vankaður og skorinn á höndum eftir bílveltu

Umferðarslys varð í gærdag þegar bifreið valt í Keflavík. Það varð með þeim hætti að ökumaður sem var að aka bifreið sinni norður Hringbraut missti stjórn á henni þegar hún tók að renna í hálku að ljósastaur. Hann reyndi að koma í veg fyrir óhappið en bifreiðin fór þá út af veginum, valt og endaði á hjólunum.

Ökumaðurinn komst af sjálfsdáðum útúr bifreiðinni en var vankaður og skorinn á höndum. Hann var fluttur með sjúkrabifreið til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.