Nýjast á Local Suðurnes

Loka fyrir umferð um Faxabraut

Á tímabilinu 21.09.2020 til 24.10.2020 mun verktakinn Ellert Skúlason endurnýja fráveitu Reykjanesbæjar á þeim hluta Faxabrautar sem liggur á milli Sólvallagötu og Suðurgötu.

Þessi framkvæmd mun raska aðgengi íbúa við Faxabraut 7-17 sunnan megin og hús nr. 4-22 norðan megin götunnar.

 Verkið verður unnið í tveimur áföngum.

  1. Áfangi verður unninn á tímabilinu 21.09.2020 – 10.10.2020 (hús nr. 7-13 og 4-16)
  2. Áfangi verður unninn á tímabilinu 10.10.2020 – 24.10.2020 (hús nr. 15-17 og 18-22)