Bikarleikur í blaki í Keflavík
Kvennalið Keflavíkur í blaki tekur á móti liði UMFL í bikarkeppninni í blaki þriðjudaginn 21. nóvember næstkomandi. Leikurinn fer fram í íþróttamiðstöð Heiðarskóla í Reykjanesbæ og hefst klukkan 19:45.
Keflvíkingar vonast til þess að áhorfendur fylli í salinn, en aðgangur á leikinn er ókeypis, en baukur fyrir frjáls framlög verður við innganginn til styrktar kvennaliði Keflavíkur sem stefnir í mótsferðalög eftir áramót.
Blakdeild Keflavíkur þiggur einnig styrki til keppnisferðalaga á reikning deildarinnar
0142-26-6002
640513-0200