Nýjast á Local Suðurnes

Sveindís æfði með einu besta félagsliði heims

Keflvíkingurinn Sveindís Jane Jónsdóttir æfði á dögunum með aðalliði Paris Saint-Germain í knattspyrnu.

Sveindís Jane er um þessar mundir á lánssamningi frá Keflavík hjá Breiðabliki og það var á þeirra vegum sem ferðin var farin. Auk Sveindísar var einn annar leikmaður Blika við æfingar hjá franska stórliðinu dagana 9.-13. febrúar síðastliðinn.

Stúlkurnar fengu þannig gott tækifæri til að máta sig við margar af bestu leikmönnum heims en í liðinu eru 17 landsliðskonur þar á meðal hin danska Nadia Nadim og Formiga frá Brasilíu.