Nýjast á Local Suðurnes

Leggur til að einungis bólusett börn fái dagvistun í leikskólum

Mynd: Leikskólinn Laut í Grindavík

Fulltrúi Framsóknarflokksins í Grindavík gerði bólusetningar barna að umtalsefni á síðasta fundi bæjarráðs og minnti á að bólusetningum er ætlað að verja börn gegn alvarlegum smitsjúkdómum og að öllum börnum með lögheimili hér á landi standi til boða bólusetning gjaldfrjálst.

Fulltrúin lagði í beinu framhaldi til að frá haustinu 2019 verði samþykki fyrir dagvistun í leikskólum Grindavíkur háð því að foreldrar eða forráðamenn framvísi skírteini sem staðfestir að börn hafi verið bólusett samkvæmt því skipulagi sem sóttvarnarlæknir leggur fram.

Bæjarráð vísaði málinu til fræðslunefndar til frekari útfærslu.