Eftirlýstur á 187 kílómetra hraða
Ökumaður sem var á ferð eftir Reykjanesbraut í gærmorgun mældist á 187 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund.
Lögreglan á Suðurnesjum handtók hann og færði á lögreglustöð vegna gruns um fíkniefnaakstur. Sýnatökur þar sýndu jákvæða niðurstöðu á tvær tegundir fíkniefna. Umræddur ökumaður ók sviptur ökuréttindum og hafði lögregla áður haft afskipti af honum vegna þess. Þá var hann eftirlýstur vegna annars máls.
Ökumannsins bíður ákæra og dómur vegna ofsaakstursins.