Nýjast á Local Suðurnes

Tekinn með tvær kúlur af hvítu efni

Tveir einstaklingar sem lögreglan á Suðurnesjum hafði afskipti af um helgina reyndust vera með meint fíkniefni í fórum sínum. Annar þeirra var með meint kannabis og hinn með tvær kúlur af hvítu efni. Þeir voru báðir handteknir og færðir á lögreglustöð.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja  til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.