Nýjast á Local Suðurnes

Lögreglumenn reyndu eftir bestu getu að fylla holu

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Skemmdir urðu á að minnsta kosti fimm bifreiðum í gærkvöld eftir að þeim hafði verið ekið ofan í stóra holu á Grindavíkurvegi. Átta hjólbarðar undir bifreiðunum sprungu og ein felga var ónýt.

Lögreglumenn á Suðurnesjum fóru á vettvang og reyndu eftir bestu getu að fylla holuna. Hún var svo merkt með keilum til að fyrirbyggja skemmdir á fleiri bifreiðum. Framkvæmdir stóðu yfir á veginum og var holan talin hafa myndast í tengslum við þær