Nýjast á Local Suðurnes

Færð tekin að spillast

Færð á Suðurnesjasvæðinu er farin að spillast til muna, samkvæmt tilkynningu frá lögreglu.

Skyggni á Sandgerðis- og Garðskagavegi er afar slæmt inn á milli og biðjum við því ökumenn um að fara um með mikilli aðgát, og á svæðinu öllu auðvitað.
Það væri afskaplega gott að geta gefið björgunarsveitum smá frí svona akkúrat yfir hátíðarnar.

Gleðilega hátíð kæru landsmenn – komumst heil og örugg heim, segir í tilkynningu frá lögreglu.