Bjóða geymslusvæði fyrir ferðavagna

Reykanesbær mun bjóða íbúum að nýta ónotuð bílastæði við Heiðarskóla og Akurskóla sem geymslusvæði ferðavagna í sumar.
Svæðin eru tilgreind (sjá mynd hé fyrir neðan) og þar sem þessi stæði verða nýtt aftur af starfsfólki skólanna þegar skólastarf hefst aftur í ágúst.
Þessi svæði eru ekki vöktuð með beinum hætti en þar sem staðsetning þessara stofnanna er í miðjum hverfum þá er alltaf um óbeina vöktun að ræða. Vagnarnir eru þarna á ábyrgð eigenda og þarf að rýma svæðin í vikunni 9. – 13. ágúst þar sem starfsfólk mætir til vinnu 16. ágúst.
Óskað er eftir því að þeir íbúar sem ætla nýta sér þessi svæði fyrir ferðavagnana sína sendi tölvupóst á netfangið reykjanesbaer@reykjanesbaer.is með skráningarnúmer ferðavagns og símanúmer eigenda.

