Lýsa yfir hættustigi Almannavarna
![keilir reykjanes geopark](https://i0.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2019/03/keilir-reykjanes-geopark.jpg?resize=620%2C264)
Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir hættustigi almannavarna vegna öflugu jarðskjálftahrinunnar sem enn er í gangi á Reykjanesskaga.
Þetta er gert í samráði við lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu, lögreglustjórann á Suðurnesjum og Veðurstofu Íslands, að því er segir í tilkynningu frá almannavörnum.
Hættustigi er lýst yfir til að samhæfa aðgerðir og verklag ýmissa verklagsaðila og stofnana. Það hafi ekki áhrif á almenning, segir í tilkynningu.