Nýjast á Local Suðurnes

Samþykktu 810 milljóna tilboð í breytingar og lagfæringar á Myllubakkaskóla

Breytingar standa nú yfir á byggingm Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ, en skólanum var sem kunnugt er lokað og kennsla færð í önnur húsnæði eftir að mygla og rakaskemmdir greindust í húsnæðinu.

Reykjanesbær hefur nú samþykkt tilboð í 12 verkþætti vegna breytinga að upphæð tæplega 810 milljónir króna. Kostnaðaráætlun hljómaði upp á rúmar 920 milljónir.