Nýjast á Local Suðurnes

Erfiðar aðstæður á Keflavíkurflugvelli vegna veðurs

Myndin tengist fréttinni ekki

Nokkuð hefur verið um að flugferðum frá Keflavíkurflugvelli hafi verið seinkað í dag, en aðstæður á flugvellinum eru erfiðar vegna veðurs.

Samkvæmt upplýsingum sem Suðurnes.net hefur eftir starfsfólki á vellinum hefur gengið erfiðlega að ferma og afferma vélar í dag vegna veðursins auk þess sem lengri tíma hefur tekið að afísa flugvélar. Nú undir kvöld hefur hvesst allhressilega og hafa landgangar verið teknir úr notkun og því ljóst að einhverjar tafir verða á flugi í kvöld.