Taka rafmagn af hluta Njarðvíkurhverfis
![ljosleidari lagnir rafmagnslagnir](https://i1.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2016/01/conduit-166802_1280.jpg?resize=620%2C264)
Vegna viðhaldsvinnu í dreifistöðvum við Vallarbraut og Borgarveg í Reykjanesbæ, Mánudaginn. 09.12.19 er óhjákvæmilegt að fasteignir sem tengjast viðkomandi stöðvum verði án rafmagns á meðan vinnu stendur. Eigendur fasteigna á þessu svæði sem hafa skráð símanúmer (NÁNAR HÉR) fá senda tilkynningu um straumleysið með SMS (smáskilaboðum).
Gert er ráð fyrir því að rafmagn verði tekið af kl. 00:00 (miðnætti) í nótt og rafmagn verði komið á aftur eigi síðar en kl. 06:00 að morgni 10.12.19