Nýjast á Local Suðurnes

Flugstjóri hyggst kæra farþega

Tveir flugfarþegar urðu uppvísir að því að reykja um borð í flugvélum sem voru á leið til landsins; annar í morgun og hinn í gærmorgun. Sá síðarnefndi hugðist halda áfram ferð sinni til Berlínar en ákveðið var að hann færi ekki í það flug vegna þessa athæfis. Flugstjóri vélarinnar hyggst kæra hann fyrir hönd flugfélagsins.

Hinn farþeginn játaði sök og tók lögreglan á Suðurnesjum af honum skýrslu vegna málsins. Sá getur einnig átt von á alvarlegum eftirmálum.