Nýjast á Local Suðurnes

Sorpeyðingarstöð Suðurnesja kannar möguleika á sameiningu við Sorpu

Framkvæmdastjórar Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja og Sorpu munu móta og útfæra tillögu sem lögð verður fyrir stjórnir fyrirtæjanna um hvernig best verður staðið að því að meta hlutdeild fyrirtækjanna í mögulegu sameiningarferli um sameiningu eða aukið samstarf. Fulltrúar fyrirtækjanna hafa þegar hist á fundum, þar sem sameiningarmál hafa verið könnuð.

Á fundi sínum þann 2. ágúst síðastliðinn ákvað stjórn Sorpeyðingarstöðvarinnar að ganga til samstarfs við ráðgjafafyrirtækið Capacent um að leggja fram verkefnistillögu sem greindi þá verkþætti sem huga þarf að áður en ákvörðun er tekin um það hvort og þá hvernig af sameiningu félaganna gæti orðið.