Nýjast á Local Suðurnes

Allt á fullu fyrir framboð – Skrifað undir ofaní skurði

Söfnun meðmæla fer vel af stað fyrir framboð Tómasar Loga til embættis forseta Íslands, en söfnum meðmæla er í fullum gangi um þessar mundir.

Frá þessu er greint á Facebook-síðu frambjóðandans og fylgir meðfylgjandi mynd færslunni, en á henni er meðmælandi að skrifa undir listan ofan í skurði á meðan frambjóðandinn leggur loka hönd á splæsingu rafstrengs sem fór í sundur við þjóðveg eitt gegnum Selfoss í gær.

Hægt er að skrifa undir listann rafrænt á slóðinni https://island.is/umsoknir/maela-med-frambodi/?candidate=1000002