Nýjast á Local Suðurnes

Fingralangir í flugstöð skömmuðust sín og skiluðu stolinni myndavél

Flugfarþegi sem var að koma frá Newark í vikunni tilkynnti lögreglu í flugstöðvardeild lögreglunnar á Suðurnesjum um að stolið hefði verið úr ferðatösku sinni. Taskan hafði verið innrituð á Newarkflugvelli en þegar eigandinn sótti hana á færibandið á Keflavíkurflugvelli reyndist hún vera umtalsvert léttari en við innritun ytra. Í ljós kom að búið var að fjarlægja mikið af fatnaði úr henni.

Þá barst lögreglu tilkynning um að myndavél hefði verið stolið frá farþega í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Í myndavélakerfi sást að konan hafði misst litla tösku með myndavélinni án þess að taka eftir því. Skömmu síðar bar að tvo menn sem sáu töskuna, skoðuðu það sem í henni var og hirtu myndavélina.  Lögregla hafði upp á hinum fingralöngu sem skömmuðust sín og skiluðu vélinni. Konan brást glöð við þegar hún fékk eign sína aftur í hendur.