sudurnes.net
Fingralangir í flugstöð skömmuðust sín og skiluðu stolinni myndavél - Local Sudurnes
Flugfarþegi sem var að koma frá Newark í vikunni tilkynnti lögreglu í flugstöðvardeild lögreglunnar á Suðurnesjum um að stolið hefði verið úr ferðatösku sinni. Taskan hafði verið innrituð á Newarkflugvelli en þegar eigandinn sótti hana á færibandið á Keflavíkurflugvelli reyndist hún vera umtalsvert léttari en við innritun ytra. Í ljós kom að búið var að fjarlægja mikið af fatnaði úr henni. Þá barst lögreglu tilkynning um að myndavél hefði verið stolið frá farþega í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Í myndavélakerfi sást að konan hafði misst litla tösku með myndavélinni án þess að taka eftir því. Skömmu síðar bar að tvo menn sem sáu töskuna, skoðuðu það sem í henni var og hirtu myndavélina. Lögregla hafði upp á hinum fingralöngu sem skömmuðust sín og skiluðu vélinni. Konan brást glöð við þegar hún fékk eign sína aftur í hendur. Meira frá SuðurnesjumOlli árekstri og hljóp út í móaTekin með mikið magn af sterum í leikfangakössumStálu ilmvatni og vodkaflöskum að verðmæti yfir 100.000 krónurStálu úlpum og veski úr verlsun Bláa lónsinsHafnarfjörður gefur grænt ljós á framkvæmdarleyfi vegna Suðurnesjalínu IIÁtak lögreglu: “Íbúar sjálfir sem virða ekki hraðatakmarkanir”Lionsmenn afhentu Grindavíkurbæ fyrsta eintak af sögu klúbbsinsOddur V. Gíslason kominn með skútuna í tog – Skipverjar úrvinda af [...]