Nýjast á Local Suðurnes

Álft með unga truflaði umferð um Reykjanesbraut

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Þau geta verið margvísleg málin sem rekur á fjörur lögreglu eins og eftirfarandi ber með sér – Vegfarandi tilkynnti lögreglunni á Suðurnesjum í vikunni að álft með þrjá unga væri að spássera á Reykjanesbraut og stefndi  til sjávar. Var þetta talið geta valdið slysi bæði á mannverum og dýrum. Lögregla stöðvaði því umferð á meðan fuglarnir trítluðu yfir brautina og gekk það allt að óskum.

Þá var tilkynnt um tvær landnámshænur sem ekki hefðu skilað sér heim á tilsettum tíma. Þar sem engin tilkynning hafði borist til lögreglu um hænur í óskilum var lítið hægt að aðhafast í málinu annað en að sjá hvort flökkufuglarnir skiluðu sér heim sem þeir hafa vonandi gert.