Nýjast á Local Suðurnes

Mikið lagt í öryggi starfsmanna Reykjanesbæjar

Allar búsetueiningar á vegum Reykjanesbæjar, auk bakvaktar Velferðarsviðs sveitarfélagsins eru komnar með hlífðarfatnað sem hægt er að grípa til komi upp kórónuveirusmit, en mjög mikil áhersla er lögð á að velferðarsvið sveitarfélagsins sé starfshæft.

Þá hefur skrifstofum sveitarfélagsins verið skipt upp í þrjá hluta þar sem enginn samgangur verður milli svæða og sérinngangur fyrir hvert svæði.

Þetta kemur fram í fundargerðum neyðarstjórnar Reykjanesbæjar sem fundar daglega um þessar mundir. Í fundargerðunum kemur einnig fram að vinna hjá öllum sviðum gangi vel.