Nýjast á Local Suðurnes

Auka eftirlit með ölvunarakstri næstu mánuði

Lögreglan á Suðurnesjum mun efla eftirlit með ölvunarakstri í desember og janúar og þá sérstaklega um helgar í nánd við veitingarstaði, en markmiðið verður að fækka og koma í veg fyrir ölvunarakstursbrot, en því miður þá eiga þau til að færast í aukana þessa mánuði, segir í tilkynningu frá lögreglu.

“Talsvert er um bæði jólahlaðborð og jólaglögg og við hvetjum alla þá sem ætla sér að fara á jólahlaðborð eða slíka skemmtun yfir jólin að skilja bílinn eftir heima,” segir ennfremur.