Nýjast á Local Suðurnes

Varasamt ferðaveður framundan – Enn gult í kortunum

Mynd: Björgunarsveitin Þorbjörn

Útlit fyrir vestan hvassviðri eða storm á suðvestanverðu landinu um og eftir hádegi á morgun, miðvikudag, samkvæmt vef Veðurstofunnar, sem hefur enn á ný gefið út gular viðvaranir.

Veðurfræðingar gera ráð fyrir að færð geti spillst og ferðaveður orðið varasamt. Veðurviðvaranir verða í gildi frá hádegi fram til klukkan 19.