Nýjast á Local Suðurnes

Reykjanesbær opnar upplýsingavef vegna kosninga um deiliskipulagsbreytingar

Rafrænar íbúakosningar um breytingu á deiliskipulagi í Helguvík fara fram 24. nóvember til 4. desember 2015. Í breytingunni fólst aðallega sameining sjö iðnaðarlóða við Berghólabraut í eina við Berhólabraut 8, vegna byggingar kísilvers á lóðinni.

Íbúakosningin fer alfarið fram á netinu og notast verður við rafrænt kosningakerfi sem Þjóðskrá Íslands hefur yfirumsjón með, ásamt gerð rafrænnar kjörskrár. Kjósendur þurfa að nota Íslykil frá Þjóðskrá Íslands eða rafræn skilríki frá Auðkenni til að geta kosið. Kjörskráin verður rafræn.

Auðkenni kjósanda er aðgreint frá kosningahluta íbúakosningakerfisins með því að auðkenningarhlutinn skilar dulkóðaðri kennitölu til kosningahlutans. Þegar atkvæði hafa verið greidd eru þau dulkóðuð.

Boðið verður upp á aðgang að tölvum í Bókasafn Reykjanesbæjar á meðan á kosningu stendur. Safnið er opið kl. 9:00 – 18:00 virka daga og kl. 11:00 – 17:00 laugardaga.

Opnaður hefur verið upplýsingavefur vegna íbúakosninganna, ibuakosning.is, þar sem hægt er að lesa sig til um ástæður kosninga, fyrirkomulag og úrvinnslu. Síðar í vikunni verða sjónarmið bæjaryfirvalda og sjónarmið þeirra sem eru mótfallnir breytingunni sett á vefinn.

Kosning hefst kl. 02:00 þann 24. nóvember og lýkur kl. 02:00 þann 4. desember.