HS Veitur hagnast um 780 milljónir króna – Greiða hálfan milljarð í arð
HS Veitur tilkynntu um afkomu sína fyrir árið 2015 á hluthafafundi í morgun, fyrirtækið hagnaðist um 780 milljónir króna árið 2015.
Þá var ákveðið á fundinum að arðgreiðsla ársins muni nema 450 milljónum króna, sem skiptist á milli fjögurra eigenda fyrirtækisins, Reykjanesbær fær 250,5 milljónir króna, HSV Eignarhaldsfélag slhf, sem er í eigu Heiðars Guðjónssonar og nokkurra lífeyrissjóða, fær 171,9 milljónir króna, Hafnarfjarðarbær fær 77 milljónir og Sandgerðisbær 500 þúsund krónur.