Nýjast á Local Suðurnes

Fulltrúi frá Special Olympics International heimsótti Heilsuleikskólann Háaleiti

Heilsuleikskólinn Háaleiti á Ásbrú fékk góðan gest í heimsókn á dögunum, en þann 26 nóvember heimsótti Rebecca Ralston, Senior Manager Young Athlete Project hjá SOI Washington leikskólann og kynnti sér YAP, Young Athlete Project verkefni sem skólinn vinnur að.

Special Olympics á Íslandi hefur frá árinu 2015 unnið að innleiðingu YAP sem hefur það að markmiði að efla hreyfifærni barna með sérþarfir.  Á Íslandi er lögð áhersla á að öll börn geti notið verkefnisins og hafið er samstarf við nokkra leikskóla. Aðildarfélög ÍF eru einnig hvött til að setja á fót æfingar fyrir ung börn og nokkur félög bjóða í dag upp á slíkar æfingar.

Heilsuleikskólinn Háaleiti hefur verið lykilsamstarfsaðili frá upphafi og efnið er innleitt í samráði við íþróttakennara leikskólans, Ástu Katrínu Helgadóttur.  Það sem einkennir YAP er einföld framsetning æfinga og mælikvarðar sem allir geta notað.

Rebecca Ralston sér meðal annars um að afgreiða umsóknir um styrki vegna YAP verkefnisins. Ísland hefur fengið styrk í verkefnið og vonast er til þess að áframhaldandi stuðningur verði í boði þannig að hægt verði að halda áfram innleiðingarstarfi YAP og ná betur til leikskóla á landsbyggðinni.