Nýjast á Local Suðurnes

Kvennafrídagurinn 2016: Ýmsar stofnanir loka fyrr í Grindavík

Mánudaginn 24. október munu konur víðsvegar um land leggja niður störf kl. 14:38. Aðgerðin er táknræn en meðalatvinnutekjur kvenna eru 70,3% af meðalatvinnutekjum karla. Daglegum vinnuskyldum kvenna er því lokið kl. 14:38 Konur sem starfa hjá Grindavíkurbæ munu taka þátt í þessum aðgerðum og mun leikskólarnir loka kl. 14:15 á mánudaginn. Grindvískar konur ætla að sýna samstöðu í verki og ganga fylktu liði frá grunnskólanum við Ásabraut kl. 14:38 og safnast saman á Salthúsinu. Á heimasíðu sveitarfélagsins er biðlað til allra Grindvíkinga að sýna þessari kjarabaráttu skilning og stuðning.

Á Salthúsinu verður hægt að kaupa sér kaffibolla, spjalla og fylgjast með beinni útsendingu frá samstöðufundinum í Reykjavík. Allar konur sem vilja taka þátt eru hvattar til að mæta

Á vef viðburðarins, www.kvennafri.is, segir meðal annars:

„Meðalatvinnutekjur kvenna eru 70,3% af meðalatvinnutekjum karla. Konur eru því með 29,7% lægri tekjur að meðaltali. Samkvæmt því hafa konur unnið fyrir sínum launum eftir 5 klukkustundir og 38 mínútur miðað við fullan vinnudag frá kl. 9-17. Daglegum vinnuskyldum kvenna er því lokið kl. 14:38.

Þann 24. október árið 1975 lögðu konur um allt land niður vinnu til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna fyrir þjóðfélagið. Árið 1985 héldum við upp á kvennafrídaginn í annað sinn og aftur lögðu 25.000 konur niður vinnu. Árið 2005 héldum við upp á kvennafrídaginn í þriðja sinn og konur gengu í tugþúsunda tali út af vinnustað á þeirri mínútu þegar þær hættu að fá borgað fyrir störf sín miðað við karla. Þá gengu konur út klukkan 14:08. Árið 2010 gengu konur út klukkan 14:25.

Nú göngum við út klukkan 14:38. Við höfum grætt hálftíma á ellefu árum. Tæplega þrjár mínútur á hverju ári. Með þessu áframhaldi þurfum við að bíða í 52 ár eftir að hafa sömu laun og sömu kjör og karlar, til ársins 2068! Það er óásættanlegt!”.

Kennarasamband Íslands hvetur sveitarfélög til að sýna konum stuðning í baráttunni fyrir jöfnum kjörum og gera starfskonum sveitarfélaganna kleift að taka þátt í viðburðum dagsins. Það mætti til dæmis gera með því að hvetja karla, feður, afa, bræður og frændur, til að sækja börn í skóla og frístund kl. 14 þennan dag.