sudurnes.net
Kvennafrídagurinn 2016: Ýmsar stofnanir loka fyrr í Grindavík - Local Sudurnes
Mánudaginn 24. október munu konur víðsvegar um land leggja niður störf kl. 14:38. Aðgerðin er táknræn en meðalatvinnutekjur kvenna eru 70,3% af meðalatvinnutekjum karla. Daglegum vinnuskyldum kvenna er því lokið kl. 14:38 Konur sem starfa hjá Grindavíkurbæ munu taka þátt í þessum aðgerðum og mun leikskólarnir loka kl. 14:15 á mánudaginn. Grindvískar konur ætla að sýna samstöðu í verki og ganga fylktu liði frá grunnskólanum við Ásabraut kl. 14:38 og safnast saman á Salthúsinu. Á heimasíðu sveitarfélagsins er biðlað til allra Grindvíkinga að sýna þessari kjarabaráttu skilning og stuðning. Á Salthúsinu verður hægt að kaupa sér kaffibolla, spjalla og fylgjast með beinni útsendingu frá samstöðufundinum í Reykjavík. Allar konur sem vilja taka þátt eru hvattar til að mæta Á vef viðburðarins, www.kvennafri.is, segir meðal annars: „Meðalatvinnutekjur kvenna eru 70,3% af meðalatvinnutekjum karla. Konur eru því með 29,7% lægri tekjur að meðaltali. Samkvæmt því hafa konur unnið fyrir sínum launum eftir 5 klukkustundir og 38 mínútur miðað við fullan vinnudag frá kl. 9-17. Daglegum vinnuskyldum kvenna er því lokið kl. 14:38. Þann 24. október árið 1975 lögðu konur um allt land niður vinnu til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna fyrir þjóðfélagið. Árið 1985 héldum við upp á kvennafrídaginn í [...]