Nýjast á Local Suðurnes

Mæðgur teknar með kókaín í flugstöðinni

Mæðgur eru í gæsluvarðhaldi eftir að hafa reynt að smygla kókaíni til landsins fyrr í þessum mánuði. Þær voru að koma frá Belgíu og voru stöðvaðar af tollgæslu við komuna til landsins á Keflavíkurflugvelli vegna gruns um að þær væru með fíkniefni að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu.

Lögreglan á Suðurnesjum handtók þær í kjölfarið og reyndust þær vera með fíkniefni innvortis, önnur með sex pakkningar og hin með fimm. Samtals var um að ræða nær 500 grömm af efninu. Þær voru í kjölfarið úrskurðaðar í gæsluvarðhald.