Nýjast á Local Suðurnes

Sendibílvelta olli töfum á umferð

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Sendibíll valt á Reykjanesbraut rétt fyrir klukkan átta í morgun í miklu hvassviðri. Engum varð meint af, samkvæmt frétt á Vísir.is.Töluverðar tafir urðu á umferð vegna þessa.

Samkvæmt frétt Vísis mældist vindhraði 25,5 m/s á Reykjanesbraut skömmu fyrir klukkan átta í morgun og náði 33,9 m/s í hviðum.