Nýjast á Local Suðurnes

Hluti Innri – Njarðvíkur verður án rafmagns í dag

Vegna viðhaldsvinnu í dreifisöð við Engjadal Reykjanesbæ, þann 11. janúar er óhjákvæmilegt að  fasteignir sem tengjast viðkomandi stöð verði án rafmagns á meðan vinnu stendur.

Eigendur fasteigna á þessu svæði sem hafa skráð símanúmer hafa fengið senda tilkynningu um straumleysið með SMS, segir í tilkynningu frá HS veitum.

Gert er ráð fyrir því að rafmagn verði tekið af kl. 13:00 og rafmagn verði komið á aftur eigi síðar en kl. 17:00 sama dag.