Nýjast á Local Suðurnes

Birkidalur tólfta gatan í Reykjanesbæ sem kemur upp nágrannavörslu

Mynd: Reykjanesbær - Nágrannavarsla er í Birkidal

Nágrannavörslu hefur verið komið upp við Birkidal í Reykjanesbæ. Íbúarnir hafa bundist samtökum um að gæta að eignum hvers annar og fylgjast með híbýlum þegar nágrannar eru að heiman. Nágrannavarsla er nú við tólf götur í Reykjanesbæ.

Reykjanesbær tók formlega upp Nágrannavörslu árið 2008 en verkefnið er samstarfsverkefni umhverfissviðs Reykjanesbæjar og forvarnadeildar lögreglunnar á Suðurnesjum. Sigmundur Eyþórsson starfsmaður umhverfissvið afhenti íbúum við Birkidal upplýsingar um nágrannavörslu og límmiða til að setja í rúður og á hurðir. Merki verkefnisins var einnig komið fyrir á staurum við götuna.

Íbúar og nágrannar, í Reykjanesbæ, sem vilja taka upp formlega nágrannavörslu eru hvattir til að hafa samband við Reykjanesbæ í síma 421 6700 eða á usk@reykjanesbaer.is, segir í tilkynningu frá sveitafélaginu. Nauðsynlegt er að fá upplýsingar um ferli og kynningu áður en gata er útnefnd með nágrannavörslu.