sudurnes.net
Birkidalur tólfta gatan í Reykjanesbæ sem kemur upp nágrannavörslu - Local Sudurnes
Nágrannavörslu hefur verið komið upp við Birkidal í Reykjanesbæ. Íbúarnir hafa bundist samtökum um að gæta að eignum hvers annar og fylgjast með híbýlum þegar nágrannar eru að heiman. Nágrannavarsla er nú við tólf götur í Reykjanesbæ. Reykjanesbær tók formlega upp Nágrannavörslu árið 2008 en verkefnið er samstarfsverkefni umhverfissviðs Reykjanesbæjar og forvarnadeildar lögreglunnar á Suðurnesjum. Sigmundur Eyþórsson starfsmaður umhverfissvið afhenti íbúum við Birkidal upplýsingar um nágrannavörslu og límmiða til að setja í rúður og á hurðir. Merki verkefnisins var einnig komið fyrir á staurum við götuna. Íbúar og nágrannar, í Reykjanesbæ, sem vilja taka upp formlega nágrannavörslu eru hvattir til að hafa samband við Reykjanesbæ í síma 421 6700 eða á usk@reykjanesbaer.is, segir í tilkynningu frá sveitafélaginu. Nauðsynlegt er að fá upplýsingar um ferli og kynningu áður en gata er útnefnd með nágrannavörslu. Meira frá SuðurnesjumStefnt á að nýr skóli taki til starfa í Innri-Njarðvík árið 2017“Misgóðar” hugmyndir um bílastæðasjóðBrottförum erlendra ferðamanna fækkaði á milli áraÞróttur Vogum mun leika í 3. deild að áriLögðu skipafélag fyrir LandsréttiFordæmalaus hækkun húsnæðisverðs á SuðurnesjumStefnt á að opna bókhald Reykjanesbæjar – Hægt verður að skoða útgjöld einstakra deildaVilhjálmur vill einkavæða FríhöfninaStakksberg fékk spurningar Reykjanesbæjar vegna kísilvers afhentar frá SkipulagsstofnunInnbrot í heimahús um helgina – [...]