Nýjast á Local Suðurnes

Eldgos gæti hafist með skömmum fyrirvara

Landris heldur áfram við Svartsengi og getur eldgos hafist með skömmum fyrirvara, samkvæmt tilkynningu frá lögreglu. Íbúum Grindavíkur er þó enn heimilt að dvelja í bænum.

Hættumatskort Veðurstofu Íslands hefur gildistíma til kl. 18:00 þann 29.desember. Samkvæmt núgildandi hættumatskorti Veðurstofu Íslands er í Grindavík töluverð hætta á jarðskjálftum, sprungum og sprunguhreyfingum. Íbúum Grindavíkur er áfram heimilt að fara og dvelja heima hjá sér þar til breytingar á hættumatskorti gefa tilefnis til annars, sem gæti gerst með skömmum fyrirvara, segir í tilkynningunni.

Sérstaklega er þó ítrekað að:
Eldgos getur hafist nágrenni Grindavíkur með stuttum fyrirvara.
Erfitt getur reynst að tryggja öryggi þeirra sem dvelja eða gista inni á hættusvæði. Þeir sem fara inn á merkt hættusvæði gera það á eigin ábyrgð.
Viðbragð björgunarsveita er áfram skert. Engin björgunarsveit verður í Grindavík. Kallið eftir aðstoð með því að hringja í 112.

Í tilkynningu er einnig tekið fram að hefjist gos í eða við Grindavík verða send út sms skilaboð á gsm síma inn á svæðinu með þessum texta: RÝMING RÝMING! Yfirgefið svæðið hratt og örugglega, hringið í 112 ef ykkur vantar aðstoð. RÝMING RÝMING ……. EVACUATE! Leave the area quickly and safely, call 112 if you need help.
Lögregla sinnir eftirliti í og við Grindavík eins og verið hefur allan sólarhringinn.
Liðsmenn björgunarsveitarinnar í Grindavík eru dreifðir um landið og ekki til staðar í bænum.
Mögulegar flóttaleiðir: Nesvegur, Suðurstrandarvegur, Grindavíkurvegur.