sudurnes.net
Eldgos gæti hafist með skömmum fyrirvara - Local Sudurnes
Landris heldur áfram við Svartsengi og getur eldgos hafist með skömmum fyrirvara, samkvæmt tilkynningu frá lögreglu. Íbúum Grindavíkur er þó enn heimilt að dvelja í bænum. Hættumatskort Veðurstofu Íslands hefur gildistíma til kl. 18:00 þann 29.desember. Samkvæmt núgildandi hættumatskorti Veðurstofu Íslands er í Grindavík töluverð hætta á jarðskjálftum, sprungum og sprunguhreyfingum. Íbúum Grindavíkur er áfram heimilt að fara og dvelja heima hjá sér þar til breytingar á hættumatskorti gefa tilefnis til annars, sem gæti gerst með skömmum fyrirvara, segir í tilkynningunni. Sérstaklega er þó ítrekað að:Eldgos getur hafist nágrenni Grindavíkur með stuttum fyrirvara.Erfitt getur reynst að tryggja öryggi þeirra sem dvelja eða gista inni á hættusvæði. Þeir sem fara inn á merkt hættusvæði gera það á eigin ábyrgð.Viðbragð björgunarsveita er áfram skert. Engin björgunarsveit verður í Grindavík. Kallið eftir aðstoð með því að hringja í 112. Í tilkynningu er einnig tekið fram að hefjist gos í eða við Grindavík verða send út sms skilaboð á gsm síma inn á svæðinu með þessum texta: RÝMING RÝMING! Yfirgefið svæðið hratt og örugglega, hringið í 112 ef ykkur vantar aðstoð. RÝMING RÝMING ……. EVACUATE! Leave the area quickly and safely, call 112 if you need help.Lögregla sinnir eftirliti í og við Grindavík eins [...]