Nýjast á Local Suðurnes

Rafmagn tekið af í Sandgerði, Garði, á Ásbrú og í Höfnum aðfaranótt fimmtudags

Vegna viðhaldsvinnu í aðveitustöð í Aðalgötu aðfaranótt fimmtudagsins 9. nóvember næstkomandi verða sveitarfélögin Sandgerði og Garður án rafmagns á meðan vinnu stendur.

Gert er ráð fyrir því að rafmagn verði tekið af kl. 24:00 (miðnætti) og komið á aftur eigi síðar en kl. 02:00.

Samhliða vinnu í Aðalgötu þá verður jafnframt unnið í aðveitustöð á Ásbrú en sú vinna kallar einnig á rafmagnsleysi á Ásbrú og í Höfnum. Gera má ráð fyrir því að rafmagn verði tekið af kl. 24:00 og rafmagn verði komið á aftur eigi síðar en kl. 06:00.

Í tilkynningu biðst HS Orka velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda viðskiptavinum fyrirtækisins.

Nánar inn á heima- og á Facebook síðu fyrirtækisins.