Nýjast á Local Suðurnes

Umsókn Samherja um byggingarleyfi hafnað

Skipu­lags­nefnd Grinda­vík­ur­bæj­ar hef­ur hafnað um­sókn Sam­herja um bygg­ing­ar­leyfi fyr­ir seiðahús við Lax­eld­is­stöðina Stað vest­an Grinda­vík­ur.

Fram kem­ur í fund­ar­gerð skipu­lags­nefnd­ar að bygg­ing­in, sem er alls 2.743,1 fer­metr­ar að stærð, fari að hluta út fyr­ir bygg­ing­ar­reit, eða 250 fermetrar.

Skipu­lags­nefnd bein­ir því til um­sækj­anda að senda inn til­lögu að breyttu deili­skipu­lagi til nefnd­ar­inn­ar, seg­ir í fund­ar­gerðinni.