Nýjast á Local Suðurnes

Valgeir tók fyrstu leggina í slökkvibílahringekju Isavia

Rúmlega sex þúsund lítra slökkvibíl af gerðinni Man árgerð 2001 var ekið frá Reykjavíkurflugvelli á Ísafjarðarflugvöll í byrjun vikunnar þar sem hann verður framvegis í notkun. Slökkvibíllinn hefur verið í notkun á Reykjavíkurflugvelli en fær nú nýtt heimili fyrir vestan.

Slökkvibílnum, sem áður var notaður á Ísafjarðarflugvelli, var síðan ekið til Reykjavíkur þar sem hann verður yfirfarinn og síðan fluttur norður á Húsavíkurflugvöll.

Það var Njarðvíkingurinn Valgeir Ólason, þjónustustjóri á Reykjavíkurflugvelli sem ók slökkvibílnum til Ísafjarðar og tók þannig fyrstu leggina í svokallaðri slökkvibílahringekju Isavia, en Reykjavíkurflugvöllur fékk nýverið slökkvibíl frá Keflavíkurflugvelli og þá fór í gang þessi hringekja slökkvibíla. Á veg Isavia segir að breytingin sé kærkomin og efli brunavarnir á viðkomandi flugvöllum til muna.