Nýjast á Local Suðurnes

Fullur á ferðinni með farþega á vélarhlífinni

Sérkennilegur farþegaflutningur vakti athygli lögreglunnar á Suðurnesjum sem var við hefðbundið eftirlit aðfararnótt laugardagsins. Þar var bíl ekið eftir Aðalgötu og sat maður á vélarhlíf hans. Lögregla stöðvaði aksturinn og í viðræðum við ökumann fannst áfengislykt af honum. Öndunarpróf staðfesti neyslu hans á áfengi og var hann því handtekinn og færður á lögreglustöð.

Annar ökumaður sem ók um götur Keflavíkur var svo upptekinn við að tala í farsíma að hann virti ekki biðskyldu og ók í veg fyrir lögreglubílinn. Hann notaði ekki handfrjálsan búnað og viðurkenndi brot sín.

Loks voru höfð afskipti af fáeinum ökumönnum til viðbótar vegna gruns um að þeir ækju undir áhrifum vímuefna.