Þéna vel í Of Monster And Men – Raða sér í efstu sæti tekjulista listamanna
Brynjar Leifsson, Ragnar Þórhallsson og Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, í hljómsveitinni Of Monsters and Men, eru öll í efstu fimm sætunum yfir tekjuhæstu listamenn landsins.
Brynjar hefur þénað mest af hljómsveitarmeðlimum, 1,771 milljónir króna á mánuði og er í öðru sæti á listanum yfir listamenn, samkvæmt tekjublaði Frjálsrar verslunar. Í þriðja sæti á listanum er Ragnar með 1,737 milljónir á mánuði. Nanna er svo í fimmta sæti listans, rétt fyrir neðan leikstjórann góðkunna Baltasar Kormák, með tekjur upp á 1,712 milljónir á mánuði.
Það er ljóst að gríðarleg vinna liggur að baki þessum tekjum, en hljómsveitin hefur verið á tónleikaferðalögum um allan heim nær ellefu mánuði á ári undanfarin ár.
Í tekjublaði Frjálsrar verslunar er tekið fram að um útvarsskyldar tekjur á árinu 2015 sé að ræða og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi.