Nýjast á Local Suðurnes

Talsvert um umferðaróhöpp á Suðurnesjum um helgina

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Talsvert var um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum fyrir og um helgina. Í Keflavík lentu þrjár bifreiðir saman og voru skemmdir það miklar að fjarlægja þurfti þær með dráttarbifreið af vettvangi. Ein þeirra var kyrrstæð en ökumenn hinna tveggja voru fluttir  til skoðunar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.

Á Stapagötu lentu tvær bifreiðar saman þegar þær voru að mætast í sveigju sem er á veginum. Ökumenn beggja voru fluttir með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Bílarnir voru óökufærir eftir áreksturinn. Loks rákust tvær bifreiðir saman á hringtorgi á Njarðarbraut.