Nýjast á Local Suðurnes

Hreinsunarátak varð að lögreglumáli

Hreinsunarátak Hvutta, hagsmunafélags hundaeigenda á Suðurnesjum, á Pattersonsvæðinu varð óvænt að lögreglumáli þegar vegfarendur töldu þá sem vinna við hreinsunarátakið væru að losa sig við rusl en ekki senda það til eyðingar og höfðu samband við lögreglu.

Samkvæmt upplýsingum Suðurnes.net vinnur hagsmunafélagið verkefnið í samstarfi við Reykjanesbæ og Kadeco.