Nýjast á Local Suðurnes

Veita styrki vegna greiðslu fasteignaskatts til félaga sem ekki eru rekin í ágóðaskyni

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar samþykkti á fundi sínum á þriðjudag reglur sem heimila sveitarfélaginu veitingu styrkja til greiðslu fasteignaskatts af fasteignum. Um er að ræða starfsemi  æskulýðs- og/eða mannúðarsamtaka sem ekki er rekin í ágóðaskyni.

Heimild sveitarfélaga til undanþágu frá greiðslu fasteignaskatts er að finna í  2. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga. Þar er jafnfram ákvæði um að sveitarstjórnum sé skylt að setja reglur um beytingu þessa ákvæðis.

Styrkur til greiðslu fasteignaskatts getur að hámarki numið upphægð álagðs fasteignaskatts fyrir árið 2019. Styrkur til greiðslu fasteignaskatt af lóð reiknast í sama hlutfalli og af húsnæði. Allar nánari upplýsingar eru að finna í reglunum. Með því að smella á þennan tengil opnast Reglur um styrki til greiðslu fasteignaskatts

Umsóknarfrestur er til og með 25. febrúar 2019. Með umsókn skal fylgja ársreikningur 2018, lög félagsins og stutt greinargerð um starfsemina. Umsóknum skal skila rafrænt á netfangið reykjanesbaer@reykjanesbaer.is merktum „Umsókn um styrk til greiðslu fasteignaskatts.“