Ungur ökumaður ók á grjótgarð og festi bifreiðina
![logreglan eftirlit flugstod](https://i2.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2015/09/logreglan-eftirlit-flugstod.jpg?resize=620%2C264)
Nokkuð var um umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum í vikunni. Ungur ökumaður ók á grjótgarð sem afmarkar malarplan í Keflavík og festi bifreið sína uppi á honum. Bifreiðin er mikið skemmd.
Þá varð árekstur á gatnamótum Reykjanesbrautar og Grænásvegar þegar bifreið, sem ekið var inn á hringtorg hafnaði á hlið annarrar bifreiðar. Ökumaður síðarnefndu bifreiðarinnar fann til í hálsi, en að öðru leyti urðu ekki meiðsl á fólki.
Annar árekstur varð á Reykjanesbraut þegar bifreið, sem hafði verið lagt út í hægri kant vegarins, var ekið af stað og inn í hlið bifreiðar sem ekið var fram hjá. Bifreiðirnar voru fjarlægðar af vettvangi með kranabíl.