Nýjast á Local Suðurnes

Vöntun á dagforeldrum í Grindavík

Niðurgreiðslur til foreldra vegna daggæslu hafa verið hækkaðar og þá var sú breyting gerð síðastliðið vor að niðurgreiðslur til foreldra barna 18 mánaða og eldri hækkuðu og þurfa foreldrar þá aðeins að greiða jafnhátt mánaðargjald og greitt er á leikskóla meðan beðið er eftir plássi á leikskóla. Var þetta gert til að bregðast við stækkandi biðlistum á leikskóla bæjarins. Í október 2015 stækkaði leikskólinn Laut þegar 5. deildin bættist við fyrir yngstu nemendur. Þar urðu til 16 ný rými sem fylltust hratt. Í dag eru um 220 leikskólarými í Grindavík.

Samkvæmt heimasíðu Grindavíkurbæjar hefur vöntun á dagforeldrarýmum orðið mjög áþreifanleg síðastliðna mánuði og biðlistar orðið til þar einnig. Er skemmst frá því að segja að þrjár dagmæður hafa sótt um starfsleyfi á undanförnum vikum. Sú fyrsta er komin með leyfi og tekur til starfa núna 1. mars og hinar tvær eru langt komnar með sitt umsóknarferli og munu taka til starfa á næstunni.

Þrátt fyrir þessar úrbætur og mikla fjölgun rýma, bæði hjá dagforeldrum og á leikskólum bæjarsins, er fyrirsjáanlegt að þær muni ekki anna þörfinni ef íbúaþróun verður áfram jafn hröð.