Nýjast á Local Suðurnes

Ölvaður í bílveltu á Reykjanesbraut – Skemmdi bílinn og vegrið

Ölvaður ökumaður velti bifreið sinni á Reykjanesbraut við Grindavíkurveg í gærmorgun. Lögreglan á Suðurnesjum og sjúkrabifreið mættu á vettvang og var maðurinn þá kominn út úr bifreiðinni en reyndist ekki slasaður. Þegar lögreglumenn ræddu við hann lagði af honum áfengisþef og viðurkenndi hann áfengisneyslu.

Ökumaðurinn var því handtekinn og færður á lögreglustöð. Bifreiðin var fjarlægð með dráttarbifreið þar sem hún hafði skemmst mikið við veltuna. Voru skráningarnúmerin tekin af henni vegna þess. Þá urðu skemmdir á vegriði við Reykjanesbraut vegna atviksins.