sudurnes.net
Ölvaður í bílveltu á Reykjanesbraut - Skemmdi bílinn og vegrið - Local Sudurnes
Ölvaður ökumaður velti bifreið sinni á Reykjanesbraut við Grindavíkurveg í gærmorgun. Lögreglan á Suðurnesjum og sjúkrabifreið mættu á vettvang og var maðurinn þá kominn út úr bifreiðinni en reyndist ekki slasaður. Þegar lögreglumenn ræddu við hann lagði af honum áfengisþef og viðurkenndi hann áfengisneyslu. Ökumaðurinn var því handtekinn og færður á lögreglustöð. Bifreiðin var fjarlægð með dráttarbifreið þar sem hún hafði skemmst mikið við veltuna. Voru skráningarnúmerin tekin af henni vegna þess. Þá urðu skemmdir á vegriði við Reykjanesbraut vegna atviksins. Meira frá SuðurnesjumMiklu magni lyfja stolið úr apóteki – Enn brotist inn í báta í NjarðvíkurhöfnMikill áhugi á Græna iðngarðinum í HelguvíkLoka á afgreiðslu skólamáltíða vegna ógreiddra reikningaÓska upplýsinga um fækkun umsækjenda um alþjóðlega verndHarðjaxlar moka glóandi hrauninu ofan af lögnum – Sjáðu myndirnar!Framlengja niðurfellingu raforkugjaldaAlma innheimtir leigu í GrindavíkLíkur á öðru eldgosi aukastBjóða upp á sérhæfð foreldrafærninámskeið fyrir flóttafólkFólk gangi ekki að gosstöðvunum