Keflavík upp í Pepsi-Max
![fotbolti](https://i0.wp.com/www.sudurnes.net/wp-content/uploads/2015/07/fotbolti.jpg?resize=620%2C264)
Keflavík vann sér sæti í Pepsi-Max deild kvenna í fótbolta í dag þó liðið hafi ekki verið að spila.
Topplið Tindastóls vann sigur á Haukum, en Haukar voru fyrir leikinn eina lið deildarinnar sem átti möguleika á að hrifsa 2.sætið af Keflavík.
Keflavík á eftir að leika þrjá leiki í Lengjudeildinni og er sjö stigum á eftir Tindastóli og eiga Keflavíkurkonur því enn tölfræðilegan möguleika á því að vinna deildina.