Nýjast á Local Suðurnes

Framkvæmt á fullu við Brimketil – Stefnt að opnun í lok maí

Framkvæmdir við Brimketil og í nágrenni Reykjanesvita hafa gengið vonum framar í vetur og styttist nú óðum í formlega opnun útsýnispallanna.

Íslenskir Aðalverktakar hafa umsjón með framkvæmdum við Brimketil og hafa náð að vinna vel í mildu veðri síðustu vikna og stefnt er að opnun í Geopark-vikunni sem verður 29. maí – 3. júní. Einnig hefur verið unnið að nýjum bílastæðum við Reykjanesvita og þá hafa verið sett upp fræðsluskilti um jarðfræði, náttúru og sögu svæðisins.

reykjanesv